Myndir síðustu mánaða

Nú hef ég ákveðið að skrifa nokkur orð hér til tilbreytingar.

Fyrst vil ég byrja á tilkynningu. Ég hef sett nokkrar myndir á netið, bæði á myndasíðu Halldórs litla og mína eigin. Hér eru nokkur sýnishorn:

 Halldór litli fastur í dótakassanum sínum

Júlía og Halldór í Heiðmörk

Júlia, ég og maðurinn fyrir aftan í Túristabus í London.

En annars er allt fínt að frétta af okkur turtildúfunum þremur. Halldór er alltaf hress og hrekkjóttur að vanda. Það er meira hvað barninu finnst gaman að stríða, ég botna þetta ekki. En fyrir utan hrekkina er hann alger ljúflingur og voða skemmtilegur. Nú er hann farinn að hlaupa um allt og lærir nýtt orð nánast á hverjum degi. Nú eru hlutirnir farnir að gerast hratt.

Annars gengur flest sinn vana gang þrátt fyrir kreppu og annað leiðindar hjal fjölmiðla. Síðustu mánuði höfum við fjölskyldan ákveðið að stunda útiveru og líkamsrækt af meiri dug, því ekki gengur að vera þreklaus jarðfræðingur! Í sumar fórum við þrjú í nokkrar dagsgöngur og í haust upp á Torfajökul. Eftir þriggja daga göngur þar uppfrá í illskuveðri, sáum við í hversu lélegu formi við vorum og skelltum okkur í ræktina þar sem við höfum verið að púla að undanförnu!

Ekki nóg með þetta. Nú er ég farinn að hjóla í skólann nánast upp á hvern einasta dag. Til að gulltryggja það var sett regla á skrifstofunni minni. Ef ég mæti í skólann, og bíllinn minn er einnig þar (og ekkert hjól), þá þarf ég að leggja þrjá bjóra til skrifstofunnar. Svo þar er eins gott að standa sig ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Alfreðsson

haha æi sjá Halldór littla fastan í þessum kassa. En já hann er að þroskast hann Halldór mjög hratt núna maður reynir nú að heira í ykkur sem oftast og líka í honum. En þetta er bara þræl skemmtilegt blogg og gaman að þú skildir slá til og blogga svona einu sinni en ég get ekkert sagt neitt við þig því að ég nenni alldrei að blogga svo mér finnst bara frábært þegar aðrir nenna því en já annars er voðalítið að frétta af mér fer í jólafrýið á föstudaginn og fer heim samdægus eflaust klukkan 17:00 og veistu ég get ekki beðið að komast heim vá hvað það verður einhvað svona notarlegt. En það er verið að hrúga núna verkefnum á okkur því þetta er síðasta vikan svona fyrir lokaprófin einsog t.d. var ég er hlustunarprófi í dönsku í dag og var að skila vinnubók í ensku líka og svog var ég líka að skila þýsku ritun og svo er munnlegt próf í þýsku á morgun. en jájá ég skrapp aðeins í göngutúr í dag og labbaði allveg niður á Glerártorg en það versta var að ég fór alltof seint svo að það var búið að loka öllum búðunum en þetta var góður göngutúr bara. En heirðu þetta er að verða allt of langt hjá mér svo ég segi bara gaman að þessu bloggi og mun líta á þessar myndir, en mun eflaust heyra vonandi í ykkur á næstu dögum.

 Kveðja frá heimavist Menntaskólans á Akureyri.

Guðmundur Alfreðsson, 15.12.2008 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband